Auglýsingar á leitarvélum þekkja fleiri undir enska nafninu "PPC marketing".
Viđ greinum leitarorð fyrirtæki þíns og vinnum úr samsetningum sem við höldum að passi fyrir þinn markaðshóp. T.d. ef þú ert að selja blýanta þá myndu leitarorðin vera: blýantur, blýantar, skriffæri, yddari, blár blýantur o.s.frv. Þegar svo mögulegur viðskiptavinur er að leita á leitarvélum að fyrirtækjum sem selja blýanta þá mun hann sjá auglýsingu þína.
Auglýsing á netinu er ódýrari og áhrifameiri en auglýsing í blaði eða á strætisvagnaskýli. Það er margfalt verðmætara fyrir fyrirtæki þitt að einstaklingur sem vill kaupa blýant sjái auglýsingu frá þér en t.d. einstaklingur sem einfaldlega er að bíða eftir strætisvagni. Auglýsing á strætisvagnaskýli er ekki nándarnærri eins markviss og auglýsing á netinu.



